<$BlogRSDURL$>

Saturday, June 23, 2007

|

Sunday, May 27, 2007



|

Thursday, March 22, 2007


|

Monday, February 05, 2007

|

Saturday, January 13, 2007


|

Tuesday, August 15, 2006

nýjir tímar.. nýtt blogg... blog.central.is/lubbsina
|

Tuesday, June 13, 2006

Það hefur margt drifið á daga mína síðan síðasta færsla var gerð.
Þar ber að nefna að ég varð bachelorette í tónlist þann 24.maí, þann dag fékk ég prófskírteini í hendur, daginn eftir hélt ég til Spánar. Spánn var góður, góð strönd, góð sundlaug, góður matur, góður bruni, frábærir leikir og fyndið djók, og þannig mætti áfram telja..!! Annars fer ég bara á hverjum degi og vinn nokkra tíma á leikskóla, til að eignast smápening milli handanna! Það er nú bara alveg ágætt..kostar auðvitað þolinmæði og allt það, en ef maður vaknar illa á morgnana þá getur það nú bjargað deginum þegar litlu sætu krílin koma hlaupandi upp í fangið á manni og gefa manni besta knúsið sitt! og ég tala nú ekki um gráta þegar maður fer heim úr vinnunni eins og í dag..oh! En já.. næst á dagskrá er norðurferð um helgina í útskriftina hennar Þórnýjar minnar.. afturhvarf til fortíðar, en 17.júní verður varið í íþróttahöllinni í útskriftarathöfn, veislu heima og hátíðarkvöldverði um kvöldið. Ég hlakka nú bara til að eiga eina menntaskólahátíð þar sem ég get bara setið allt kvöldið róleg, notið matarins og skemmtiatriðanna, án þess að taka þátt í þeim sjálf! Svo eru bara 9 dagar í að familían heldur til Búlgaríu... á 4 stjörnu hótel...namm! Já ég veit ég var að koma frá Spáni.. en svona er að eiga svona góða foreldra sem ákveða að bjóða öllum dætrum sínum til útlanda í útskriftarferð! Ég verð samt að biðja ykkur öll að leggja inn pöntun um gott veður og ósk um að rigningin hætti þarna niðurfrá! Mig langar svo að komast í vatsnrennibrautargarð í staðinn fyrir þann á spáni sem opnar ekki fyrren 10. júní!! já.. það er semsagt búið að opna hann..!!! annars gerum við nú bara menningarferð úr þessu.. ekki lítið gaman að skoða land og þjóð..hlusta á búlgarska tónlist og dansa búlgarska dansa get ég ímyndað mér! Spennó spennó!
jæja.. þarf víst að vakna í vinnu í fyrramálið... gleðilegt sumarveður!
geisp..
Laufey
|

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com